ALVARA MÁLSINS – Bókaþjóð í ólestri
Laugardaginn næstkomandi, 21. janúar, verður haldin ráðstefna í Norræna húsinu undir yfirskriftinni ALVARA MÁLSINS – Bókaþjóð í ólestri. Þar verður fjallað um ískyggilegar niðurstöður rannsókna sem sýna að ört stækkandi hópur ungs fólks getur ekki lesið sér til gagns, hvað þá gamans.
Læsi telst lífsnauðsynleg færni í nútímasamfélagi enda þróun menningar og lýðræðis tæplega hugsanleg án þeirrar kunnáttu. Bóklestur stuðlar að fjölbreyttum orðaforða og gerir fólki kleift að koma hugsunum sínum, vilja og áformum á framfæri. Ekkert slær bóklestri við í þjálfun á því verkfæri sem tungumálið er. Fyrir gáleysi stækkar sá hópur barna sem engan aðgang hefur að fjársjóðum fortíðar og framtíðar. Í erindum á ráðstefnunni verður greint frá gildi lesturs og lestrarfyrirmynda og bent á öflugar leiðir til að sporna við ólæsisþróuninni.
Sjálfsprottinn hópur rithöfunda stendur að undirbúningi ráðstefnunnar og það er von þeirra að hún marki upphaf að þjóðarátaki um eflingu lesturs og vitundarvakningu um læsi sem lífsgæði. Hópurinn skorar á stjórnvöld, stofnanir, fyrirtæki, skóla og heimili um allt land að taka í kjölfarið við keflinu og leggja sitt af mörkum til að snúa þróuninni við – það dugar ekkert minna – velferð og menning bókmenntaþjóðar er í húfi!
Dagskrá:
- Ljótikór syngur.
- Ávarp – Jón Kalman Stefánsson, rithöfundur.
- Lestur er málið: Hrafnhildur Ragnarsdóttir, prófessor og forstöðumaður Rannsóknarstofu um þroska, mál og læsi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
- Læsi er skilningur: Daníel Andri Halldórsson, nemi í 10. bekk í Giljaskóla á Akureyri.
- Svavar Knútur syngur og leikur.
kaffihlé
- Lestrarhestamennska – heillandi fjölskyldusport: Brynhildur Þórarinsdóttir, rithöfundur og lektor við Háskólann á Akureyri.
- Lestur er bæði yndisleg og uppbyggileg iðja: Guðmundur Engilbertsson, lektor kennaradeild og sérfræðingur á miðstöð skólaþróunar við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri.
Dagskráin hefst kl. 14:00 og lýkur um kl. 16:00. Dagskrárstjóri er Eva María Jónsdóttir
Hópur rithöfunda vekur athygli á ALVÖRU MÁLSINS og stendur að ráðstefnunni í samvinnu við Menntamálaráðuneytið, Rithöfundasamband Íslands, Reykjavík Bókmenntaborg Unesco, Rannsóknarstofu um þroska, mál og læsi á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Norræna húsið.