Þriðji póllinn
Þriðji póllinn er heimildarmynd í fullri lengd sem var frumsýnd á RIFF í september 2020 og á alþjóðavettvangi á kvikmyndahátíðinni CPH:DOX í Kaupmannahöfn vorið 2021. Myndin er leikstýrð af Andra Snæ Magnasyni og Anní Ólafsdóttur og framleidd af Elsku Rut, Ground Control Productions og Ursus Parvus.
Þriðji póllinn fékk Eddu-verðlaun fyrir bestu tónlistina og var tilnefndur í fjórum öðrum flokkum: bestu leikstjórn, bestu klippingu, besta handrit og bestu kvikmyndatöku. Myndin var tilnefnd til „Zwierciadlo“ verðlaunanna sem besta myndin um sálfræðileg efni, á pólsku kvikmyndahátíðinni Millennium Docs Against Gravity í Póllandi.
Þriðji Póllinn er heimildarmynd um geðhvörf með söngvum og fílum. Söguhetjur eru Högni Egilsson, tónlistarmaður, og Anna Tara Edwards, íslensk kona sem ólst upp í frumskógum Nepals innan um tígrisdýr og nashyrninga. Anna Tara veiktist af geðhvörfum upp úr tvítugu og missti móður sína úr sama sjúkdómi. Hún lifði í skugga veikindanna um árabil, en þegar Högni Egilsson steig fram með sína sögu ákvað hún að feta sömu leið, skora skömmina á hólm og efna til tónleika til vitundarvakningar um geðsjúkdóma í Kathmandu, höfuðborg Nepals. Hún fékk Högna til að spila á tónleikunum og fyrir ágóðann var opnuð hjálparlína fyrir fólk í sjálfsvígshugleiðingum í Nepal.
Þriðji Póllinn fylgir Önnu Töru og Högna um framandi slóðir í aðdraganda tónleikanna. Við heyrum þeirra hliðar á sjúkdómnum; um hæðirnar og hinar miklu lægðir og leitina að jafnvægi. Þriðji Póllinn er ekki hefðbundin fræðslumynd heldur innsýn í hugsun og veruleika tveggja einstaklinga sem hafa glímt við sama sjúkdóm. Þetta er ferðasaga, mynd um óvænta vináttu og hreinskilin og opin umræða um hvað það þýðir að vera með geðsjúkdóm, og vera aðstandandi. Sögur þeirra lýsa bæði alvarleika sjúkdómsins, en einnig sigrum, og gefa umfram allt von.
LEIKSTJÓRAR: Andri Snær Magnason, Anní Ólafsdóttir
FRAMLEIÐENDUR: Andri Snær Magnason, Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir, Sigurður Gísli Pálmason, Hlín Jóhannesdóttir
HANDRIT: Andri Snær Magnason, Anní Ólafsdóttir
MEÐFRAMLEIÐENDUR: Högni Egilsson, Anna Tara Edwards, Anní Ólafsdóttir, Eva Lind Höskuldsdóttir
KLIPPING: Eva Lind Höskuldsdóttir, Anní Ólafsdóttir, Davíð Alexander Corno
KVIKMYNDATAKA: Anní Ólafsdóttir, Eiríkur Ingi Böðvarsson
TÓNLIST: Högni Egilsson
HLJÓÐHÖNNUN: Huldar Freyr Arnarson
LENGD: 78 min
UPPRUNALAND: Ísland
FRUMSÝNING: 24. September 2020, á RIFF
TUNGUMÁL: Íslenska, enska
FRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI: Elsku Rut, Ground Control Productions, Ursus Parvus
IMDb
Sjáðu Þriðja pólinn á Apple TV
„Ljóðræn veisla fyrir augað og önnur skynfæri.” – Júlía Margrét Einarsdóttir, RÚV
„Heillandi og berskjölduð viðbót í þarfa umræðu.”– Tómas Valgeirsson, Kvikmyndir.is
„One of our favourite films shown at Copenhagen Documentary Film Festival CPH:DOX … An absolutely beautiful, moving, and musical piece.” – Nordic Watchlist
„Ég er þakklát öllum aðstandendum fyrir þetta þarfa listaverk.” – Sigríður Pétursdóttir, kvikmyndagagnrýnandi
„Kvikmynd sem ég mæli með fyrir alla” – Soffía Bjarnadóttir, rithöfundur
„Listaverk sem er allt í senn; einlægt, fallegt, fyndið, sorglegt og mikilvægt.“– Björk Eiðsdóttir, ritstjóri
★★★★ “… sveiflast óhikað milli þess að vera launfyndin og nístandi sár.”– Brynja Hjálmsdóttir, Morgunblaðið
„ … one of my favourite documentaries … I first saw this last year in the Copenhagen Film Festival and it really stuck with me. I think the subject matter is so important in our current time and having one of Iceland’s biggest musicians, Högni involved, really adds to the film.“
– Alex, Nordic Watchlist„Fascinating. I think it’s done the job of highlighting bipolar disorder and raising awareness of health issues and there are ways to deal with it and help.“ – Kvikmyndapod: An Icelandic Cinema Podcast