Nýtt ljóð í tilefni af degi íslenskrar tungu

  Geisladrif   Stöldrum aðeins við : Geisladrif – er það ekki fallegt orð? Hefði amma verið spurð væri geisladrif sólstafir og skuggaleikur janúarbirtan yfir Keili guð og englar í geisladrifi brátt úreldast geisladrifin þá verður orðið frjálst geisladrif ,,ég elska þig og þegar ég hugsa til þín fyllist hugur minn geisladrifi“

Nýtt ljóð í tilefni af degi íslenskrar tungu Read More »