Um tímann og vatnið
National Geographic heimildarmyndin Time and Water byggir á bók Andra Snæs Magnasonar Um tímann og vatnið og 70 ára kvikmyndasafni fjölskyldu hans. Leikstjórinn Sara Dosa sem var Óskarstilnefnd fyrir Fire of Love býr til mynd þar sem minningar um afa, ömmur og jöklaferðir eru sett í tímahylki til að varðveita fyrir komandi kynslóðir.
Tídægra / Apausalypse
Tídægra er 52 mínútna heimildarmynd eftir Anni Ólafsdóttur og Andra Snæ Magnason, sem rannsaka heimspásuna miklu, þegar veröldin nam staðar í Covid-19 heimsfaraldrinum.
Þriðji póllinn
Heimildarmynd í fullri lengd, opnunarmynd RIFF 2020 og heimsfrumsýnd á CPH:DOX. Leikstjórarnir Andri Snær Magnason og Anní Ólafsdóttir fylgja Önnu Töru Edwards og Högna Egilssyni um borgir og frumskóga Nepal á meðan þau kafa ofan í lendur hugans.
Draumalandið
Heimildarmynd í fullri lengd. Leikstjórar: Þorfinnur Guðnason og Andri Snær Magnason. Byggð á metsölubók Andra Draumalandið – Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð.