Andri Snær Magnason er þekktur fyrir að gera flókin mál aðgengileg og varpa ljósi á óvæntar hliðar þeirra í fyrirlestrum sínum. Bók hans Um tímann og vatnið var sett upp sem sýning í Borgarleikhúsinu, sögustund fyrir fólk á öllum aldri þar sem hann spann sögur úr fortíð og framtíð og fléttaði inn í frásögnina ljósmyndum, kvikmyndum og nokkrum skelfilegum línuritum í bland við tónlist Högna.
Andri Snær er vinsæll aðalfyrirlesari bæði í eigin persónu og á netinu. Hér að ofan er TED-fyrirlestur sem hann hélt um Sólheimajökul fyrir TED Countdown árið 2020. Hann opnaði PMAC Global Health ráðstefnuna 2023 í Bangkok, hér má sjá upptöku af fyrirlestri hans með inngangi frá Richard Horton, ritstjóra Lancet. Hann opnaði ESERA 2019, eina stærstu ráðstefnu heims fyrir vísindakennara, í Bologna árið 2019. Þar sem verk hans spanna allt frá fræðiritum og vísindaskáldskap til barnabókmennta eru áheyrendur hans fjölbreyttur hópur, allt frá leikskólabörnum til háskólanema. Hann hefur haldið fyrirlestra fyrir stjórnmálamenn og valdhafa og talað um orkumál í Harvard og Columbia-háskóla.
Sem heimildarmyndagerðarmaður hefur hann komið fram með myndum sínum og setið fyrir svörum á flestum stærstu kvikmyndahátíðum heims, jafnt sem á einkaviðburðum. Annar vaxandi þáttur í starfi hans er að taka á móti hópum sem heimsækja vinnustofu hans í Reykjavík.
Viðbrögðin við fyrirlestrum Andra, hvort sem er á risastórum eða fámennum viðburðum, eru oft mjög sterk, enda markmiðið alltaf það sama ― að setja vísindi, loftslagsmál og heimssögulega viðburði í mannlegt og persónulegt samhengi.
Hafið samband með bókanir eða fyrirspurnir hér fyrir neðan.


