Hvernig verður bók til?

Fimmtudaginn 13. febrúar mun ég fjalla um verk mín og tilurð þeirra. Myndin hér fyrir ofan er frumskissa af Tímaskistunni. Ég mun fjalla um innblástur verka minna, áhrifavalda, vinnuaðferð og ýmislegt fleira og eflaust líta nokkuð til Sögunnar af Bláa Hnettinum, LoveStar og Draumalandsins, en það eru afar ólíkar bækur, bæði hvað varðar vinnuaðferð, form og inntak – en sumir hafa bent á að þær mætti kalla einskonar þríleik.

Fyrirlesturinn fer fram milli 12 og 13 – stofu 101 í Lögbergi.

Hér er formleg tilkynning frá HÍ:

Andri Snær Magnason: Hvernig verður bók til?

 Hvenær hefst þessi viðburður:
13. febrúar 2014 – 12:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 101
Háskóli Íslands

Andri Snær Magnason, sem hlaut á dögunum Íslensku bókmenntaverðlaunin í þriðja sinn, talar um tilurð verka sinna í fyrirlestraröðinni Hvernig verður bók til?fimmtudaginn 13. febrúar. Hann mun m.a. staldra við Söguna af bláa hnettinum,Lovestar og Draumalandið.

Andri Snær er Árbæingur í fjórða lið. Hann hóf rithöfundarferil sinn árið 1995 með ljóðbókinni Ljóðasmygl og skáldarán, þar sem hann segir fuglunum að snauta því hann sé að yrkja ljóð um vorið. Síðan hefur hann sent frá sér ritverk af ýmsu tagi; ljóð, smásögur, skáldsögur, leikrit, kvikmyndahandrit og fleira. Verk hans hafa vakið fádæmi athygli og borið hróður hans yfir á tugi tungumála.

Fyrirlestraröðinni Hvernig verður bók til? hefur verið haldið úti af námsbraut í ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands frá 2009. Þar hafa margir af virtustu höfundum þjóðarinnar rætt um ritverk sín. Fyrirlesturinn fer fram í stofu 101 í Lögbergi milli 12 og 13.

 

 

12695_10201791618865423_1122174898_n

Hér er frumskissa af Tímakistunni - ritað á rúðu í Toppstöðinni Elliðaárdal 2009. Hér er frumskissa af Tímakistunni – ritað á rúðu í Toppstöðinni Elliðaárdal 2009.