Blái hnötturinn
Leikritið Blái hnötturinn var fyrst sett upp í Þjóðleikhúsinu árið 2001 og hefur sú sýning farið um allan heim á stór og smærri svið. Leikritið byggir á metsölubókinni Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason (1999), sem hlotið hefur fjölda verðlauna og verið þýdd á yfir 30 tungumál.
Blái hnötturinn hefur verið settur upp á stóru sviðum leikhúsa víða um heim, þar á meðal tvisvar í Toronto, í Akvavit-leikhúsinu í Chicago, í Álaborg í Danmörku, í Lahti og Vaasa í Finnlandi, í Luzern í Sviss og í Gdansk í Póllandi. Árið 2005 var Blái hnötturinn frumsýndur í YPT-leikhúsinu í Toronto í Kanada í leikstjórn Allen MacInnis. Sú uppfærsla hlaut fimm tilnefningar til Dora Mavor Moore-verðlaunanna, og var sett upp aftur árið 2013.
Aðrar uppfærslur hafa meðal annars verið í Maxim Gorki leikhúsinu í Berlín, í Háskólans í Tampa, Þjóðleikhúsi Grikklands, Ríkisbrúðuleikhúsi Búlgaríu og farandsýning Móricz Zsigmond leikhússins í Ungverjalandi. Skólauppfærslur hafa einnig verið settar upp víða, meðal annars á Íslandi, í Danmörku, Noregi, í Pakistan og Íran.
Vinsæl söngleikjaútgáfa Bergs Þórs Ingólfssonar og Kristjönu Stefánsdóttur var frumsýnd á aðalsviði Borgarleikhússins í Reykjavík árið 2016, og gekk þar í tvö leikár. Sýningin hlaut flest verðlaun þegar Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin voru veitt árið 2017, m.a. sem barnasýning ársins:
Bókin og leikritið eru víða notuð í skólum þar sem þemu þeirra tengjast sterklega verndun jarðarinnar og umhverfisvitund, en sagan hvetur til umræðu um siðferði, samfélag og áhrif okkar á heiminn.
Lengst úti í geimnum búa ótal börn sem fullorðnast ekki. Enginn skipar þeim fyrir verkum. Þau sofa þegar þau eru þreytt, borða þegar þau eru svöng og leika sér þegar þeim dettur í hug. Kvöld eitt birtist stjarna á himnum sem fellur til „jarðar“ með miklum látum.
Þá hefst hættulegt ævintýri sem leiðir börnin um dimma skóga, djúpa dali og loftin blá og reynir þá á vináttu og ráðsnilld barnanna sem aldrei fyrr. Blái hnötturinn er mikilvægt og hugmyndaríkt ævintýri, þar sem brýnt er fyrir fólki að sýna réttlæti og mannúð og um leið er það viðvörun að hlaupa ekki eftir innantómu stuði. Síðast en ekki síst er það ábending um að varðveita æskuna í sjálfum sér og öðrum.
Nordiska Aps in Denmark er dreifingaraðili leikritsins
„Það er unun að horfa á Bláa hnöttinn í Borgarleikhúsinu!“ ― D.K., Hugras.is
„Það er til eitt orð sem nær utan um allt sem sagan er: snilld.” ― Heimir Viðarsson, Morgunblaðið
„Sagan af bláa hnettinum er frumlegt ævintýri sem mun höfða til aðdáenda Maurice Sendak, Dr. Seuss og Hans Christian Andersen.“ ― Í umsögn dómnefndar UKLA verðlaunanna
„Ultimately, Blue Planet succeeds, by stimulating the imagination while still managing to make you think.” ― Toronto Star
„ …a Seussian mix of wonder, wit and gravitas.“ ― New York Times
„I have a feeling that The Story of the Blue Planet will become one of the classics“. ― Göteborgs Posten
„Sagan af bláa hnettinum er ævintýri eins og þau gerast best” ― Margrét Tryggvadóttir, DV
„’The Blue Planet’ (based on a best-selling Icelandic book) is a story filled with adventures, in which children will find what they like best: plot twists, magic, humour, horror and a happy, though not obvious, end.“ ― Trójmiasto.pl Gdansk Poland
„I remain convinced of Snær Magnason’s magnificence. The Story of the Blue Planet is a unique piece of work by one of Iceland’s most celebrated writers.” ― Mooney on Theatre
,, … a funny and imaginative cautionary tale about our own embattled blue planet.” ― K. Reid, Chicago Tribune
„Despite the multitude of subjects tackled, the play is clearly constructed and easily comprehensible to a young audience. What is more, the story of the blue planet and its inhabitants arouses great emotions in children. In the performance I watched most of the audience were children whose degree of excitement at the play seemed to be reaching maximum levels.“ ― Anna Jazgarska, teatralny.pl