
Útgáfuár: 2006
Tegund: Samfélagsmál, náttúruvernd, orkumál, hugmyndir, hálendið
Blaðsíður: 304
Þýðingar: 7 tungumál
Útgefendur:
- UK (Citizen Press)
- Japan (NKH Publishing)
- Denmark (Tiderne Skifter)
- Sweden (Natur & Kultur)
- Germany/Austria/Switzerland (Orange Press)
- Spain/South America (Editorial Aire)
- USA (Open Letter)
Draumalandið – Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð kom út árið 2006 og er ein mesta selda bók sem komið hefur út á Íslandi. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2006 og Verðlaun verðlaunanna árið 2009 í tilefni af 20 ára afmæli Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Kvikmyndin Draumalandið kom út árið 2009 sem Þorfinnur Guðnason leikstýrði í samvinnu við Andra Snæ og hlaut Edduverðlaun sem heimildarmynd ársins.
„Þið skáldin eruð ekki í neinum tengslum við raunveruleikann,“ segir leigubílstjóri við Andra Snæ Magnason í upphafi þessarar frumlegu og makalausu bókar. Skáldið svarar kallinu og fer með lesandann í óvenjulegt ferðalag um íslenskan samtíma. Með því að skoða hlutina frá frumlegu og skáldlegu sjónarhorni lýkur Andri Snær upp algerlega nýrri sýn á kunnuglega hluti. Í Draumalandinu víkur Andri Snær af braut fantasíu, bónusljóða og blárra hnatta og ræðst að kjarna stærstu mála samtímans. Allt myndar þetta hraða og spennandi bók sem hrærir upp í heimsmyndinni. „
„Draumalandið er áhrifamikil bók um brýnustu málefni okkar tíma, skrifuð af þekkingu og fágætri ástríðu sem hreyfir við hverjum lesanda. Svona bók hefur aldrei verið skrifuð áður á íslensku!“
Viðurkenningar
- Íslensku bókmenntaverðlaunin 2006
- Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana 2006, besta fræðibókin
- Verðlaun verðlaunanna árið 2009 í tilefni af 20 ára afmæli Íslensku bókmenntaverðlaunanna
- Kairos verðlaunin – Evrópsk menningarverðlaun veitt af Alfred Toepfer Stiftung
„Þessi bók á erindi við okkur öll á Íslandi, hvaða skoðun sem við kunnum að hafa á því hvernig atvinnuvegum okkar skal háttað.“
— Vigdís Finnbogadóttir
„Dreamland, a devastating polemic that puts Iceland’s environmental issues into a global perspective. The book has sold 18,000 copies — the equivalent, in percentage terms, of 18 million copies in the United States.“
— New York Times
„Draumalandið er spennandi frá upphafi til enda og minnir að því leyti á reyfara. Og um leið er bókin þrungin speki og væntumþykju í garð þjóðar, náttúru og barna framtíðar.“
— Guðmundur Páll Ólafsson, rithöfundur
„Þessa bók VERÐA ALLIR ÍSLENDINGAR AÐ LESA.“
— Silja Aðalsteinsdóttir
„Andri Snaer Magnason, whose scathingly funny critique of his country’s politics and society, Dreamland: A Self-Help Guide for a Frightened Nation, was a huge bestseller in this bookish country, told me this week: „In economics, they talk about the invisible hand that regulates the market. In Iceland, the free market became so wild that it was not fixed by an invisible hand, but an invisible guillotine. So, in one weekend, the whole class of our newly rich masters of the universe lost their heads (reputation, power, and money), and all the power and debt of the newly privatized companies fell into the hands of the people again.“
— Rebecca Solnit – The Nation
„Allt það sem stjórnvöld vildu ekki að þú fengir að vita, færðu að vita í þessari bók.“
— Bubbi Morthens