Tídægra / Apausalypse
Tídægra / Apausalypse er 52 mínútna löng heimildarmynd eftir Anni Ólafsdóttur and Andra Snæ Magnason. Í myndinni kryfja þau ástandið sem skapast hefur í „stóru pásunni“, þegar heimurinn stöðvaðist vegna Covid 19, með aðstoð fjölmargra landsþekktra listamanna og hugsuða. Myndin er tekin á hápunkti samkomubanns á meðan heimsfaraldrinum stóð, í Reykjavík og nágrenni.
Í Tídægru / Apausalypse koma fram: Anna Rún Tryggvadóttir, Ásta Fanney Sigurðardóttir, Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Ernesto Camilo Aldazábal Valdés, Fríða Ísberg, Guðrún Eva Mínervudóttir, Gunnar Kvaran, Halldór Laxness Halldórsson, Hallgrímur Helgason, Haraldur Jónsson, Ingvar Sigurðsson, Ragnar Axelsson, Sigríður Dögg Arnardóttir, Sigríður Þorgeirsdóttir, Þorleifur Örn Arnarsson, Tryggvi Þorleifsson, and Unnur Elísabet Gunnarsdóttir.
Tídægra / Apausalypse var tilnefnd til Eddu-verðlauna árið 2021 í tveimur flokkum: besta heimildarmyndin og besta kvikmyndatakan.
Í þessu margmiðlunarverki sláumst við í hóp dansara, tónlistarmanna og heimspekinga um land allt í leit að svari við spurningunni: Hver er tilgangurinn með þessari stóru alheimspásu?
Listin finnur sér ávallt farveg, jafnvel þótt allt hafi verið sett á pásu.
LEIKSTJÓRAR: Andri Snær Magnason, Anní Ólafsdóttir
FRAMLEIÐENDUR: Andri Snær Magnason, Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir, Hlín Jóhannesdóttir, Anní Ólafsdóttir, Eva Lind Höskuldsdóttir
HANDRIT: Andri Snær Magnason, Anní Ólafsdóttir
KLIPPING: Eva Lind Höskuldsdóttir, Anní Ólafsdóttir, Sighvatur Haraldsson
KVIKMYNDATAKA: Andri Haraldsson
TÓNLIST: Ásta Fanney Sigurðardóttir, Ryiuichi Sakamoto
HLJÓÐHÖNNUN: Björn Viktorsson
LENGD: 52 mín
UPPRUNALAND: Ísland
FRUMSÝND: 21. maí 2021, á Stockfish Film Festival
TUNGUMÁL: Íslenska
FRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI: Elsku Rut og Lokaútgáfan ásamt Ground Control Productions og Ursus Parvus
IMDb
Horfðu á Tídægru / Apausalypse, í opinni útgáfu í Emergence Magazine
Ritgerð um Tídægru / Apausalypse sem birtist í Emergence Magazine
„Mikilvæg skjalfesting á óvenjulegu ástandi í veraldarsögunni“ … „dýrmæti myndarinnar er fólgið í nokkrum ansi mögnuðum myndum af mannlausum heimi.“ – Ásgeir H. Ingólfsson, Menningarsmygl
„ … you don’t want to be missing out on that … A really interesting a document of a very specific period of time … So fascinating to hear from everyone, hear their thoughts, and also see the country in a state of downtime.“
– Kvikmyndapod: An Icelandic Cinema Podcast„Athyglisvert og vel unnið verk sem talar með beinum hætti inn í samtímann … Fróðlegt (og kærkomið!) verður að fá fjarlægð á þetta sögulega augnablik – og mun myndin reynast ígildi tímahylkis eftir einhver ár.“ – Gunnar Ragnarsson, Morgunblaðið