Viðburðir á kvikmyndahátíðinni í Bergen

Um tímann og vatnið verður sýnd á BIFF – Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Bergen núna í október, auk þess sem ég tek þátt í tveimur viðburðum á hátíðinni.

Þann 19. október tek ég þátt í umræðum um sagnalist á tímum loftslagsbreytinga. Með mér verður Nnimmo Bassey, annar umhverfsiverndarmaður og skáld, sem kemur frá Nígeríu. Það verður ókeypist aðgangur að viðburðinum en hann verður haldinn í Kulturhuset, Lillesalen og hefst kl. 17:45.

Þann 20. október held ég erindið Beyond Time and Water: Live DVD Extra Bonus Material. Ég ætla að tala um ljóð, tímann, minningar, jökla og sýna myndefni með, við undirspil strengjakvartetts sem samanstendur af hljóðfæraleikurum úr ungliðadeild Bergen Fílharmóníunnar. Þessi viðburður fer fram í Cornerteateret og byrjar kl. 18:00.

Miðar á Um tímann og vatnið eru svo til sölu hér.

Hlakka til að sjá sem flesta í Bergen!