Kvikmyndin Um tímann og vatnið hlaut í gær hin virtu Wildscreen Panda verðlaunin fyrir besta handrit. Handritið byggir á samnefndri bók minni en handritshöfundar myndarinnar eru Sara Dosa, Jocelyne Chaput og Erin Casper, ásamt mér sjálfum.
Það er gríðarlega mikill heiður fyrir okkur að fá Wildscreen Panda verðlaunin, sem eru þau virtustu sem veitt eru á sviði náttúrulífsmynda, og vera þar í félagsskap Sir David Attenborough sem hlaut verðlaun fyrir myndina A Gorilla Story.
Alls var Um tímann og vatnið tilnefnd í fjórum flokkum, fyrir handrit, myndatöku, klippingu og tónlist.