Það er mikill heiður að taka þátt í tónverkinu Ritual með hinum heimsþekkta sellóleikara Yo-Yo Ma, einum fremsta tónlistarmanni okkar tíma, í Grieghallen á Alþjóðlegu tónlistarhátíðinni í Bergen í Noregi árið 2027.
Í verkinu leikur Yo-Yo Ma með ungum sellóleikurum úr Festival Academy í Bergen, ásamt hópi tónlistarfólks úr BIT20 Ensemble, einsöngvara og stórs kórs. Flutt eru brot úr fornnorræna Völuspá, ásamt þjóðlaginu Fagurt er í fjörðum og inngangstexta sem ég hef skrifað.
Ritual er íslenskt verk, svar við þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir á okkar tímum varðandi loftslag og náttúru. Verkið er gert að frumkvæði Yo-Yo Ma sem pantaði það hjá listastúdíóinu marvaða. Arnbjörg María Danielsen mótaði hugmyndina í samstarfi við tónskáldið Viktor Orra Árnason. Verkið verður flutt í Bergen undir stjórn Bjarna Frímanns, stjórnanda BIT20 Ensemble.
Ritual verður flutt í Grieghallen í Bergen þann 10. júní 2027. Hér er hægt að kaupa miða.
Þátttakendur
marvaða
Arnbjörg María Danielsen höfundur, stjórnandi, sviðsmynd
Ingibjörg Jara Sigurðardóttir sviðsmynd
Viktor Orri Arnason tónlist
Andri Snær Magnason texti
Bjarni Frímann stjórnandi
Yo-Yo Ma selló
BIT20 Ensemble
Ungir sellóleikarar úr Festival Academy í Bergen
Kórinn Bergen Private Gymnas
Håkon Matti Skrede kórstjórnandi