Náttúruóperan aftur á svið í MH

Það eru komin 27 ár síðan leikritið Náttúruóperan var sett upp af Leikfélagi Menntaskólans við Hamrahlíð og nú í haust verður leikurinn endurtekinn undir leikstjórn Öldu Örvarsdóttur.

Náttúruóperan fjallar um ungan mann í sárarkreppu og örvæntingarfulla leit hans að orði í staðinn fyrir ,,elska“, hann leitar að orði sem þýðir hið sama og elska þýddi áður en merkingin varð linari og líkari orðinu LOVE.

Frumuppfærslan árið 1999 hjá LFMH var eitt mest gefandi verkefni sem ég hef tekið þátt í og þar kynntist ég mörgu af mínu uppáhalds fólki. Leikstjóri var Harpa Arnardóttir og meðal þátttakenda í sýningunni voru Aðalbjörg Árnadóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Björn Kristjánsson, Gunnar Tynes, Gyða Valtýsdóttir, Hildur Guðnadóttir, Jón, G. Ólafsson, Jón Gunnar Þórðarson, Kristín Valtýsdóttir, Yrsa Þöll Gylfadóttir, Örvar Þóreyjarson Smárason og fleiri.