Sýningar á Bláa hnettinum standa nú yfir í Bifröst á Sauðárkróki. Leikfélag Sauðárkróks stendur að baki uppfærslunni og sýningar verða nánast daglega fram til 27. október.
Leikfélagið styðst við leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar með tónlist Kristjönu Stefánsdóttur og það er Ólafur Jens Sigurðsson sem leikstýrir verkinu.
Blái hnötturinn var líka settur upp nýlega í Brasilíu, af nemendum og kennurum í skólanum Escola Waldorf Quintal Mágico, undir leikstjórn Joana Marinho. Skólinn er í strandbænum Paraty, sem er sögulegur bær með gullfallegum húsum og steinilögðum götum frá nýlendutímanum.
Blái hnötturinn hefur verið settur upp a.m.k. 44 sinnum víða um heim. Bókin var gefin út í Brasilíu en þetta er í fyrsta skipti sem leikritið er sýnt þar og sýningin virðist hafa verið afar metnaðarfull.