Viðtal í The Observer

Langt viðtal við mig birtist í breska blaðinu The Observer í dag. Miles Ellingham blaðamaður kom til Íslands fyrr í sumar til að taka viðtalið og við eyddum nokkrum dögum saman.

Fyrst flugum við í lítilli þyrlu þvert yfir landið með Heather Gano Mattera, en hún hafði af tilviljun boðið mér með í ljósmyndaferð sem hún hafði skipulagt vegna væntanlegrar bókar sinnar, Geography of Awe.

Við flugum yfir Ölfusá, Þórsmörk, Fjallabak, Tungná og yfir Jökulheima, skálann sem afi og amma byggðu árið 1955 og gistu í í brúðkaupsferð sinni 1956. Við fórum alla leið yfir Vatnajökul og niður í Eyjabakkajökul og aftur til baka um Ódáðahraun, Herðubreið, Sprengisand, Hofsjökul, Þjórsárver, Kerlingarfjöll og Langjökul. Í þyrlu án hurða. Þetta var brjáluð upplifun, eiginlega fljúgandi draumur.

Þetta flug var ekki síður áhugavert fyrir mig af persónulegum ástæðum. Ég hef gengið og tjaldað á þessum slóðum með vinum og fjölskyldu og skrifað um mörg þessara svæða, bæði í Um tímann og vatnið og Draumalandið – sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð, enda hafa mörg þeirra verið í hættu vegna virkjanaframkvæmda eða hlýnunar jarðar.

Við Miles gengum einnig upp í þoku að Okjökli, fyrsta íslenska jöklinum sem missti stöðu sína sem jökull, og að minnisvarðanum sem við settum þar upp árið 2019.

Hér má lesa greinina.