
Mér hlotnaðist sá heiður í dag að taka á móti Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti, sem Umhverfis- orku- og loftslagsráðherra veitir árlega á degi íslenskrar náttúru.
Um viðurkenninguna segir á vef Stjórnarráðsins:
Andri Snær hefur um árabil verið ötull málsvari náttúrunnar og vakið almenning til vitundar um náttúruvernd og loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélag. Hann hefur meðal annars beint sjónum að verndun íslenskrar náttúru, jöklum landsins, súrnun sjávar og þeim grundvallarbreytingum sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér.
Andra Snæ hefur tekist að gera flókin umhverfis- og loftslagsmál skiljanleg og aðgengileg almenningi. Hann hefur kynnt sér vísindalegar rannsóknir og miðlað niðurstöðum þeirra á aðgengilegan hátt, meðal annars með bókum, kvikmyndum, fyrirlestrum og virkri þátttöku í samfélagsumræðu. Með því hefur hann brúað bil milli vísinda og almennings og vakið athygli á ábyrgð núlifandi kynslóða gagnvart náttúrunni og komandi kynslóðum.
Andri Snær hefur jafnframt lengi tekið virkan þátt í umræðu um nýtingu og vernd íslenskrar náttúru. Í Draumalandinu, sem kom út árið 2006, fjallaði hann meðal annars um náttúruvernd, orkumál og íslenska hálendið og vakti verkið mikla samfélagsumræðu um verðmæti náttúrunnar og ákvarðanir um nýtingu hennar.
Á síðari árum hefur Andri Snær lagt sérstaka áherslu á loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á jökla og hafið. Í bókinni Um tímann og vatnið, sem kom út 2019, fjallar hann meðal annars um bráðnun jökla, hækkun sjávarborðs og súrnun sjávar og setur breytingarnar í samhengi við líf fólks og ábyrgð gagnvart komandi kynslóðum. Bókin hefur náð til lesenda víða um heim og er nú einnig orðin að samnefndri heimildarmynd á vegum National Geographic.
Andri Snær átti einnig þátt í því að vekja heimsathygli á örlögum Okjökuls. Ok missti stöðu sína sem jökull árið 2014 og árið 2019 var komið fyrir minningarskildi á fjallinu til að minnast hans og vekja athygli á áhrifum loftslagsbreytinga. Texti Andra Snæs á skildinum, Bréf til framtíðarinnar, beinir sjónum að ábyrgð samtímans gagnvart komandi kynslóðum og vakti athöfnin og minnismerkið athygli hérlendis og erlendis og gerðu Ok að alþjóðlegu tákni um hörfun jökla og áhrif loftslagsbreytinga.
Ræðan sem ég hélt við þetta tækifæri:
Ef Ísland væri 400.000 manna borg í Evrópu, einhversstaðar við strandlengjuna á milli Tromsö og Palermo þá væri Ísland í c.a 140 sæti yfir stærð borga en Ísland væri hins vegar óvenju öflug borg. Ísland væri ein mesta fiskveiðiborgin ekki aðeins í Evrópu heldur heiminum öllum, með um 1% af öllum fiski sem mannkynið veiðir. Hún væri ein mesta málmiðnaðarborgin með milljón tonna framleiðslu af áli og eitthvað af kísiljárni (þótt ekkert af þessu væri í eigu borgarbúa). Hún væri ein öflugasta ferðamannaborgin miðað við höfðatölu en við erum ofarlega í heiminum hvað varðar fjölda ferðamanna á haus, um fimm ferðamenn á mann. Ísland væri öflug flugrekstrarborg með óvenju marga áfangastaði og borgin væri umkringd landbúnaðarhéraði sem fullnægir þörfum fyrir mjólk og kjöt. Hún væri líka ein mesta orkuborgin, með heildarframleiðslu á við milljónaborgir og þá væri jarðvarminn og orkan sem býr í heitu vatni ekki meðtalinn en þá væri hún líklega í efsta sæti hvað orkuframleiðslu varðar. Svo væru hér um 500.000 tonn af hreinu vatni á hvert mannsbarn. Þessi borg væri þar að auki nokkuð sýnileg á sviðum bókmennta og lista með sitt eigið tungumál svo fátt eitt sé nefnt. Ef við værum borg í Evrópu værum við nærri nærri Talllinn, Flórens, Bologna, Bochum og Lyon í fólksfjölda. Það eru til blómlegar borgir í Evrópu, fæstar þeirra geta nefnt einn af þessum þáttum, hvað þá alla fimm. Fisk, orku, ferðamenn, málm og menningu.
Flest af því sem að ofan er talið er forgjöf sem náttúran færir okkur, og í því felst talsverð ábyrgð, að umgangast náttúruna á ábyrgan hátt. Það gerir kröfur til okkar sem íbúa í lýðræðisríki – að þekkja landið og auðlindirnar.
Það er svo sérkennilegt að eftir að við erum orðin stærst í einhverju, þegar við tökum mest á mann, þá er eins og það veiti okkur ekki tækifæri til að vera rausnarleg þegar kemur að verndun eða friðun, þá er eins og menn setji sér í staðinn markmið um að tvöfalda það sem þegar er orðið margfalt á við það sem nágrannaþjóðir nýta. Þegar aðrar þjóðir ná sambærilegum lífsgæðum með 20% af orkuframleiðslu okkar – þá látum við eins og frekari nýting sé forsenda lífsgæða og framfara og málefnið jafnvel svo brýnt að lögum og reglum er breytt til að þjóna offorsinu.
Sigríði í Brattholti varð það á að þekkja fossinn sinn og þurfti þar með að eiga margar andvökunætur, vegna þess að hún þurfti að berjast fyrir verndun hans. Þeir sem hafa fengið verðlaunin á undan mér hafa margir hverjir átt svipaðar andvökunætur, vegna þess að oftar en ekki hafa augljós verðmæti og stórkostleg fegurð verið í hættu hér á landi og þeim sem hafa talað fyrir náttúrunni hefur verið mætt með óvild og jafnvel alefli. Einhverju sinni var ég á fundi svipuðum þessum og maður nærri mér dæsti kaldhæðislega og sagði: ,,Ég ætla ekki kenna börnum mínum að þekkja neina staði, ég ætla ekki að kenna þeim nein gildi, ekkert um umgengni við landið, hvað þá nöfn á fuglum, það er bara ávísun á vonbrigði. Ísland er einn stór biðflokkur, náttúran er bara hér þangað til einhverjum dettur í hug að ræsa jarðýtuna.“
Við tökum því sem gefnu að sá sem elst upp á Íslandi sé tengdur við landið sitt. Við höfum séð tölur úr Pisa könnuninni um árangur í náttúruvísindum – við höfum tekið umræðuna um læsi, en við erum með fleiri skynfæri og fleiri leiðir til að skilja náttúruna og það má spyrja hvernig við stöndum okkur á því sviði. Miðað við þær gjafir sem náttúran gefur okkur, hvort við stöndum undir ábyrgðinni.
Kona hafði samband við mig um daginn – hún fer með 6000 bresk ungmenni árlega í jöklagöngur á Íslandi. Um leið og hún fagnaði því að geta kynnt undur jöklanna fyrir svo stórum hópi ungmenna – þá sagði hún að það væri algert frávik ef hún fengi íslenskan hóp og spurði sig hvernig stæði á því. Að við sem búum við fótskör jöklanna nýttum þá ekki til að kenna unga fólkinu.
Það er eitt að standa okkur illa á bóklega sviðinu, en sem manneskjur, með augu, eyru, fingur og nef – þá eru jöklar Íslands lokuð bók fyrir meirihluta íslenskra ungmenna. Jöklar þekja næstum 10% landsins, ef jöklarnir væru smurðir yfir landið eins og rjómi á marenstertu – þá værum við öll undir 30 metrum af ís – en við leyfum þessum undrum að fara alveg framhjá heilu kynslóðunum, jafnvel síðustu kynslóðunum sem gæti upplifað jökla og finnst einhvernveginn sjálfgefið að ef lögheimilið sé ,,ís-land“ þá fylgi því meðfæddur skilningur.
Ísland er land en ef við tökum fiskveiðilögsöguna með þá er Ísland að mestu leyti haf. Fáar þjóðir eiga jafn mikið hlutfallslegt haf, Ísland er líklega meira en 80% haf ef við horfum á alla lögsöguna. Og ef við skoðum það sem býr í djúpinu þá er það svo margfalt fjölbreyttara en lífið á landi. En ef við skoðum efniviðinn, furðufiska, seli, hvali, kóralla og sjófugla – þá ætti íslenskt 12 ára gamalt barn að vera með æði fyrir fiskum, rétt eins og amerískur krakki elskar risaeðlur. Barnið ætti að þrá að verða sjávarlíffræðingur og eiga að minnsta kosti 10 uppáhalds hvalategundir.
En maður veltir fyrir sér hvort staðan sé þannig. Hversu margir íslenskir krakkar hafa séð hval? Og hversu fáir sem hafa náð unglingsaldri hafa gengið skrefinu lengra og kannski snorklað í vík eins og í Gróttu? Getur verið að mjög fáir íslenskir skólakrakkar fari í hvalaskoðun á meðan tugþúsundir erlendra barna eru úti á sundunum á hverju ári? Getur verið að það sé ekki sjálfgefið að tengjast hafinu þótt maður fæðist á Íslandi og fari gegnum fulla skólagöngu?
Og þá veltir maður fyrir sér nú þegar næstum 90 langreyðar hafa verið skotnar, án þess að markaður sé fyrir kjötið, semsagt – án þess að fjárhagslegur grundvöllur sé fyrir drápinu, án þess að nokkur manneskja ætli sér að borða þetta allt saman. Þá veltir maður auðvitað fyrir sér ekki aðeins náttúrulæsi, heldur fjármálalæsi og síðan læsi á tíðarandann í heiminum. Hvað á að gera við fimm milljón kíló af hvalaafurðum? Næstum 50 kíló á hverja fjölskyldu á Íslandi? Er það vegna þess að við erum svo tengd hafinu og upprunanum. Eða er það vegna þess að við erum ótengd, höfum engann áhuga á því að hér í kringum okkur eru næststærstu dýr sem jörðin hefur séð, frá upphafi. Enginn markaður? Drepa til að drepa? Ég veit ekki um neina dýrategund sem hagar sér svona nema kannski minkurinn.
Og þá er það hálendið, sem þjóð sem hefur virkjað 10 sinnum meira en hún þarf – hún gæti svo auðveldlega verndað hálendið öllum til heilla og nýtt það til að auðga andann og fegurðarskyn ungrar kynslóðar. Einhverra hluta vegna höfum við ekki lufsast til að vernda mörg fegurstu svæðin eða hugsa um landið í heild eða hugsa til framtíðar, hversu mikils virði það væri að hafa verið stórhuga – já eins og Sigríður í Brattholti.
Eins og Guðmundur Páll Ólafsson hafði eftir Baba Dioum – senegölskum skógfræðingi
Þú verndar aðeins það sem þú elskar
elskar aðeins það sem þú þekkir
þú þekkir aðeins það sem þér er kennt