Stuttmyndin Lavaforming frumsýnd á NOWNESS Experiments

Hraunmyndanir eða Lavaforming er framtíðarsýn í arkitektúr þar sem glóandi hraun er notað sem byggingarefni fyrir mannvirki og heilar borgir.

Verkefnið var framlag Íslands til 19. alþjóðlegu arkitektasýningar Feneyjatvíæringsins árið 2025 og stuttu seinna sýnt í Listasafni Íslands. Sýningin segir sögu framtíðarsamfélags sem hefur lært að temja hraunflæði, nýta sér það og þannig breytt staðbundinni ógn í tækifæri til sköpunar.

Stuttmyndin Lavaforming, sem var frumsýnd í Feneyjum sem hluti af af sýningunni og leikstýrt af Sukanyu Mukherjee og Arnari Skarphéðinssyni, gerð eftir handriti mínu, kom í gær út á list- og hönnunarvefnum NOWNESS Experiments.

Arnhildur Pálmadóttir, stofnandi og eigandi s. ap arkitekta var sýningarstjóri, arkitekt og listrænn stjórnandi  sýningarinnar. Með henni í sýningarteyminu voru Arnar Skarphéðinsson, Björg Skarphéðinsdóttir, Sukanya Mukherjee, Jack Armitage og ég sjálfur.