
Heimildarmyndin Um tímann og vatnið var nú í vikunni valin ein af bestu myndum ársins 2026 (hingað til), í tveimur virtum kvikmyndaritum, The Film Stage og IndieWire, þar sem hún fékk mjög vandaðar umfjallanir. Lofsamlegir dómar hafa líka birst í Los Angeles Times, Financial Times, Irish Independent, Irish Times og á RogerEbert.com svo fátt eitt sé nefnt.
Sara Dosa leikstýrir myndinni, sem byggir á samnefndri bók minni, og nýtir hún sér stórt filmu- og vídeósafn fjölskyldu minnar síðustu 70 árin.
Myndin hefur verið á mikilli siglingu um Bandaríkin, Bretlandseyjar og víðar, og hlotið frábærar viðtökur. Sýningar verða m.a. í Washington, Toronto, Montreal, Gimli og München núna í júlí. Svo styttist í frumsýningu hér á Íslandi í lok sumars.