Um tímann og vatnið – frumsýning á Íslandi

Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók minni, verður frumsýnd hér heima þann 27. ágúst í Háskólabíói, með íslensku tali og enskum texta.

Sérstakur heiðursgestur verður Halla Tómasdóttir og við Sara Dosa, leikstjóri myndarinnar, munum sitja fyrir svörum að sýningu lokinni. Einnig verður tónlistarflutningur með Ólöfu Arnalds og Skúla Sverrissyni.

Um tímann og vatnið er óður til lands og jökla og hugleiðing um hvað það þýðir að lifa umbreytingartíma. Myndin er að miklu leiti byggð upp af myndefni úr safni mínu og fjölskyldu minnar síðustu 70 árin.

Eftir frumsýningu fer Um tímann og vatnið í almennar sýningar. Hún hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur víða um heim og ég hlakka mikið til að sýna hana hér heima.

Miðar á frumsýninguna fást á Tix, hér.
Allar upplýsingar um myndina eru hér.

Leave a Comment

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.