Blái hnötturinn endurútgefinn í Bretlandi

Sagan af bláa hnettinum var endurútgefin í dag í Bretlandi hjá Pushkin Press, að þessu sinni í flokki „klassískra barnabóka“ í ritröðinni Pushkin Children’s Classics.

Fyrsta útgáfa hjá Pushkin Press var árið 2015, í enskri þýðingu Julian D’Arcy með myndum Áslaugar Jónsdóttur, en þremur árum áður hafði hún komið í fyrsta skipti út á ensku hjá Seven Stories Press í Bandaríkjunum.

Þýðingarnar eru í dag orðnar hátt í 40 og ég hef ekki lengur tölu yfir útgáfulöndin.

Leikritið sem byggir á bókinni hefur sömuleiðis verið sýnt víða um heim, en það sem af er árinu hafa uppsetningar verið í Búlgaríu, Flórída og á Akranesi.

Leave a Comment

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.