Það var sannur heiður að taka á móti riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum í gær, 17. júní.
Það var góður hópur sem forseti sæmdi þessu heiðursmerki, en á vefsíðu forseta er hægt að lesa um þau öll og viðburðinn sjálfan.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, talaði um það í ræðu sinni að á bak hvern orðuhafa væri heilt samfélag. Ég þakka því sérstaklega vinum og fjölskyldu og samstafsfólki!