Stikla komin fyrir Um tímann og vatnið

Stikla komin fyrir Um tímann og vatnið, Time and Water. Myndin er framleidd af National Geographic Documentary Films og hin Óskars tilnefnda Sara Dosa er leikstjóri (fyrir Fire of Love), aðalframleiðandi er Shane Boris sem fékk Óskarinn fyrir Navalny ásamt Elijah Stevens og Jameka Autry. Myndin er sýnd á kvikmyndahátíðum um allan heim þessa dagana.

Myndin er að miklu leyti ofin úr myndefni sem fjölskylda mín hefur tekið – úr verður einhverskonar ástarbréf til Íslands og jökla og kynslóða fortíðar og framtíðar. Þarna eru myndir sem Árni afi tók á 16mm filmu frá 1955, Kristín Björnsdóttir móðir mín tók frá 1975 á 8mm filmu og það sem ég hef skotið frá 1995. Semsagt þrjár kynslóðir að kvikmynda í 70 ár. Það er síðan bundið saman af kólombískum tökumanni Pablo Alvares Mesa. Efnið var umfangsmikið þannig að mikið mæddi á klippiteyminu Erin Casper, Jocelyne Chaput, and Mark Harrison.

Þarna birtist öll fjölskyldan Magni Jónsson í sólbaði og mamma í 10 ára afmælinu sínu, Hulda amma og afi og brúðkaupsferðin á Vatnajökli ásamt ferðum með Jöklarannsóknafélag Íslands. Þarna eru Jón og Dísa og grágrýtisbrúðkaupið þeirra á Sléttu, þarna er Margrét Sjöfn Torp og Hlynur Snær Andrason, nýfæddur Hulda Filippía Andradóttir Elín Freyja Andradóttir og Kristín Lovísa Andradóttir, þarna er Jón Pétur Magnason bróðir minn og Hulda Brá Magnadóttir systir mín og John frænda bregður fyrir.

Myndin hefur verið þrjú ár í vinnslu á vegum Nat Geo en það eru 17 ár síðan Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir hratt verkinu af stað og ég byrjaði að safna í sarpinn fyrir alvöru. Öflugt teymi stendur á bak við myndina heima og erlendis. Teiknimyndir og grafík gerði Lucy Munger, Hljóðheiminn gerði Björn Viktorsson, íslenskir framleiðendur eru Heather Millard og Kristín Ólafs, Heimir Freyr Hlöðversson, Freyja Kristinsdottir og Karólína Stefánsdóttir. Það er sjaldgæft að heimildarmyndir rati í kvikmyndahús, hún fer í sýningar 29. maí og verður sýnd í London, New York, LA, San Francisco og víðar. Síðan verður hún í streymi á Disney+. Ég er að gera íslensku talsetninguna í næstu viku – vil ekki koma heim með mynd og tala ensku á hvíta tjaldinu. Hún ætti að fara í sýningar í lok sumars.

Leave a Comment

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.