Heimildarmyndin Time and Water, sem er gerð upp úr bók minni Um tímann og vatnið, hefur fengið mjög góðar viðtökur síðan hún var frumsýnd á Sundance 27. janúar s.l. Myndin verður sýnd á mörgum kvikmyndahátíðum á næstu vikum, hún er framleidd undir merki National Geographic og leikstýrt af Söru Dosa, sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna árið 2023.
Ég verð viðstaddur sýningar á myndinni í San Francisco 25. og 26. apríl, á Margaret Mead kvikmyndahátíðinni í New York 1. maí og Hot Docs í Toronto 2. maí.








