
Söngleikur sem gerður var eftir bókinni Sagan af bláa hnettinum var settur upp í Borgarleikhúsinu árið 2016 með tónlist eftir Kristjönu Stefánsdóttur og söngtextum eftir Berg Þór Ingólfsson. Sýningin hlaut Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins og tónlist ársins árið 2016. Nú hefur tónlistin verið útsett fyrir Stórsveit Reykjavíkur sem flytur hana í Hörpu þann 24. apríl.
Gestir verða leikararnir Björgvin Franz Gíslason og Hjörtur Jóhann Jónsson auk Barnakórs Akureyrarkirkju undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur og Barnakórs Ungleikhússins í Keflavík undir stjórn Kristjönu Stefáns ásamt ungum einsöngvurum frá Ungleikhúsinu í Keflavík og Grandaskóla í Reykjavík. Eiríkur Rafn Stefánsson útsetti fyrir stórsveit og er stjórnandi á tónleikunum.
Tónleikarnir verða haldnir í samvinnu við Barnamenningarhátíð, föstudaginn 24. apríl kl. 18:00 í Norðurljósasal Hörpu. Miða má nálgast hér.