Blái hnötturinn í Flórída

Blái hnötturinn, barnaleikrit sem byggir á bókinni Sagan af bláa hnettinum sem kom út 1999, er stóra vorsýning University of Tampa Theatre í Flórída, undir leikstjórn Nicole Crowther. Sýningar hefjast 17. apríl í Tampa — tryggið ykkur miða ef þið eruð þar!

Leikritið var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins árið 2001 og hefur verið á flakki um heiminn síðan. Það hefur verið sett upp á stærstu sviðum borgarleikhúsa, í skólum, farandleikhúsum, sem söngleikur, brúðuleikhús og svo mætti lengi telja, víða um Evrópu, Norður Ameríku og í Asíu. Fyrr á þessu ári var gerð geysifalleg uppfærsla í Búlgaríu.

Leave a Comment

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.