Blái hnötturinn í Þjóðarbrúðuleikhúsi Búlgaríu

Barnaleikritið Blái hnötturinn heldur áfram að ferðast um heiminn og er um þessar mundir sýnt í þjóðarbrúðuleikhúsi Búlgaríu – Куклен театър Стара Загора, í Stara Zagora sem er ein af stærstu borgum landsins. Þetta er gífurlega metnaðarfull uppfærsla þar sem koma fram bæði leikarar og brúður sem ásamt sviðsmynd og búningum eru stórskemmtileg. Leikstjóri verksins er Elitsa Petkova.

Bókin Sagan af bláa hnettinum hefur verið þýdd á yfir 30 tungumál og síðan leikritið var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins árið 2001 hefur það verið sett upp í Kanada, Finnlandi, Pakistan, Þýskalandi, Sviss, Póllandi, Íran, Bandaríkjunum, Danmörku, Noregi, Grikklandi, Ungverjalandi, Svíþjóð og nú í Búlgaríu.