
Barn í Lapplander-jeppa leitar að griðastað fyrir randaflugu uppi á hálendinu, ungur maður leitar að orði sem nær yfir ástina, nýbakaður faðir fer í pílagrímaferð til Lególands og allir draumar rætast þegar fjárfestir kaupir sér risaeðlu og heldur einkapartí með Duran Duran.
Sofðu ást mín geymir sjö raunsæjar og persónulegar sögur eftir Andra Snæ Magnason. Saman mynda þær einlægan streng sem fyllir upp í óvenju fjölbreytt höfundarverk hans.
★ ★ ★ ★ „Vel skrifaðar, einlægar og lauslega tengdar sögur mynda sterka heildarmynd.”
— Magnús Guðmundsson / Fréttablaðið
„ … talar frá hjarta sögumannsins sjálfs. Stíllinn fær að njóta sín og margar smásagnanna sitja í lesandanum löngu eftir að lestrinum er lokið.”
— Guðrún Baldvinsdóttir / Víðsjá, RÚV